Melaskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-7. bekk. Stefna Melaskóla er að vera framsækinn skóli sem byggir á traustum grunni þar sem gleði og umburðarlyndi, kurteisi og jákvæður agi einkennir starfsumhverfið. Nám og velferð nemenda er ætíð sett í öndvegi. Vellíðan, samvinna, metnaður og sköpunargleði eru þau gildi sem höfð eru að leiðarljósi í daglegu starfi.